Aðalfundur Stjórnarskrárfélagsins 5. desember 2024 ályktar:
Næsta ríkisstjórn Íslands er hvött til að svara af stórhug ákalli kjósenda um breytingar. Ekki aðeins varðandi efnahagsmál heldur einnig lýðræði og stjórnarfar í landinu.
Að viðurkenna úrslit kosninga er ófrávíkjanleg regla í lýðræðisríki. Að brjóta þá grundvallarreglu setur stórhættulegt fordæmi fyrir því að hægt sé að sniðganga úrslit kosninga og lýðræðislegan vilja meirihluta þjóðarinnar eftir geðþótta. Þannig væri til dæmis hægt að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB
en virða niðurstöðuna að vettugi ef hún hentaði ekki meirihlutanum á Alþingi hverju sinni.
Alþingi hefur á 12 árum ekki auðnast að sigla stjórnarskrármálinu í höfn. Það hlýtur að teljast fullreynt. Til að rjúfa kyrrstöðuna er lagt til að Alþingi kalli saman slembivalið stjórnlagaþing almennra borgara. Þingið hefði það hlutverk að leggja lokahönd á tillögurnar sem samþykktar voru í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012 sem grundvöllur nýrrar stjórnarskrár og fá þær Alþingi í hendur. Stjórnlagaþingið vinni
með lýðræðislegar grundvallarreglur að leiðarljósi og virðingu við úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar, eins og nánar er líst í áskorun Stjórnarskrárfélagsins frá 23. nóvember síðastliðnum.
Stjórnarskrárfélagið áréttar kröfuna um að úrslit kosninga séu viðurkennd og að tillögur að nýrri stjórnarskrá sem yfir 2/3 hlutar kjósenda (67%) samþykktu sem grundvöll nýrrar stjórnarskrár í þjóðaratkvæðagreiðslu verði afgreiddar af heilindum og virðingu við lýðræðislega niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar.