Aðalfundur Stjórnarskrárfélagsins 2021

Kæru félagar, Aðalfundur Stjórnarskrárfélagsins verður haldinn kl. 11:30 sunnudaginn 28. nóvember á 5. hæð Borgarbókasafnsins í Grófinni, 101 Rvk. Aðalfundurinn er öllum opinn en mál, tillögu- og atkvæðisrétt hafa eingöngu félagsmenn. Á fundinum verður farið yfir helstu viðburði sl. 2ja ára og þau verkefni sem félagið hefur beitt sér fyrir. Ennfremur verður staða stjórnarskrármálsins rædd… Continue reading Aðalfundur Stjórnarskrárfélagsins 2021

Lýðræði ekki auðræði—Auðlindirnar í okkar hendur!

Stjórnarskrárfélagið, Efling stéttarfélag, Öryrkjabandalagið, Samtök kvenna um nýja stjórnarskrá, Gegnsæi, samtök gegn spillingu, og hópur almennra borgara og félagasamtaka hefur tekið sig saman og flautað til mótmælafundar á Austurvelli n.k. laugardag, 23. nóvember klukkan 14. Almenningur í Namibíu er rændur af íslenskri stórútgerð. Almenningur á Íslandi er rændur arðinum af auðlindum sínum. Tugir milljarða eru… Continue reading Lýðræði ekki auðræði—Auðlindirnar í okkar hendur!

Aðalfundur 17. mars 2019

Aðalfundur Stjórnarskrárfélagsins verður haldinn nk. sunnudag, 17. mars kl. 16:00, á efri hæð Sólon í Bankastræti, gengið inn gegnum veitingasal á neðri hæð. Við hvetjum ykkur öll til að mæta og gefa kost á ykkur í stjórn félagsins eða deila hugmyndum ykkar um stjórnarskrármál. Aðalfundurinn er öllum opinn en tillögu- og atkvæðisrétt hafa eingöngu félagsmenn.… Continue reading Aðalfundur 17. mars 2019

Skráning á viðburð laugardaginn 29. september

Kæru félagar Í tengslum við ráðstefnu á vegum rannsóknarsetursins EDDU og HÍ um lýðræðislega stjórnarskrárgerð 27.-28. september mun Stjórnarskrárfélagið standa fyrir viðburði á Nauthól við Nauthólsvík laugardaginn 29. september kl. 13:00-16:00. Á fundinn koma innlendir sem erlendir gestir ráðstefnunnar, stjórnmálamenn frá öllum flokkum og almenningur. Þarna verður góð blanda af náttúru, umræðum, gjörningi, söng og… Continue reading Skráning á viðburð laugardaginn 29. september

Tíminn er útrunninn

Tíminn er útrunninn Fréttatilkynning frá stjórn Stjórnarskrárfélagsins Hvar er stjórnarskrá fólksins? Undir lok 141. löggjafarþings vorið 2013 lá fyrir Alþingi frumvarp að nýrri stjórnarskrá. Frumvarpið var fullfrágengið af hálfu Alþingis og efnislega samhljóða tillögum þjóðkjörins Stjórnlagaráðs. Áður höfðu 67% kjósenda lýst stuðningi við þær tillögur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Um tillögurnar ríkti, með öðrum orðum, víðtæk sátt… Continue reading Tíminn er útrunninn